Gítar
![]() |
Gítarnám í tónsölum byggist á að læra ryþmíska tónlist sem eru t.d. blús, rokk, popp, fönk og djass. Ekki skiptir máli hvort nemandinn sé með kassa-,klassískan- eða rafgítar. Bara að hann sé 6 strengja og í spilhæfu ástandi.
Margir gítarleikarar byrja að spila ungir að aldri og flestir nemendur geta notað
venjulegan gítar frá um það bil 10 ára aldri. Til eru gítarar í barnastærð en þeirra
er yfirleitt ekki þörf og það eru sjaldan vönduð hljóðfæri.
Lögð er áhersla á nótnalestur, hljómaspilamennsku, spuna (improvisation) og að spila eftir eyranu. Einnig eru nemendum kenndar réttar líkamsbeitingar og að varast alla spennu í líkamanum þegar leikið er.
Gítarkennarar skólans eru: Birkir Rafn Gíslason, Gestur Guðnason, Ingólfur Magnússon, Rafn Emilsson, Þorsteinn Einarsson, Þröstur Jóhannsson, Þóra Björk Þórðardóttir og Matthías V. Baldursson.






