Bassi
Rafbassinn er ungt hljóðfæri. Hann var fundinn upp á fjórða áratug síðustu aldar en komst fyrst í almenna notkun upp úr 1950. Rafbassinn er ómissandi í rokk-, popp- og blústónlist en einnig notaður nokkuð í djasstónlist.

Hann er grunnurinn sem heldur öllu saman og því mjög mikilvægur. Rafbassi hefur aðeins 4 strengi í stað 6 sem eru á gítar og því eru krakkar oft fljótari að ná tökum á bassanum heldur en gítarnum þó svo það sé ekki í öllum tilfellum.

Kenndar eru fjölmargar tónlistarstefnur allt eftir áhuga nemandans eins og: rokk, blús, fönk og djass. Byrjendur læra rétta handstöðu og rétta setu með hljóðfærið. Einnig er farið í öll grunnatriði í bassaleik sem og að læra að spila eftir eyranu, nótnalestur og formskyn þroskað.

Bassakennarar skólans eru: Birkir Kárason og Ólafur Kristjánsson

Skóladagatal
<<
sep - 2010
>>
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30   
Skođa mánuđ
Hvar heyrđir ţú af Tónsölum?
Auglýsing í bćjarblađi.
Auglýsing í Fréttablađinu.
Heyrt vel talađ um skólann.
Gegnum leit á netinu.
Annari auglýsingu.
Senda inn svar
Skóladagatal
2009 - 2010
Tónsalir - Bćjarlind 12 - 201 Kópavogur - Sími 534 3700 - tonsalir(hjá)tonsalir.is