Trommur
Til að nám geti hafist á trommusett þarf nemandi að hafa líkamlega burði til að valda auðveldlega trommukjuðum og ná til gólfs með báðum fótum þegar setið er á trommustól. Það ættu ekki að vera vandkvæði á að nemendur frá u.þ.b. 8 ára aldri geti hafið nám þó einhverjar málamiðlanir gætu þurft að koma til fyrstu árin. Frá upphafi náms þarf nemandi að hafa til umráða trommusett, æfingaplatta og kjuða af heppilegri stærð og þyngd.

Byrjendur í trommuleik fara í gegnum grunnatriði við að spila á trommur, t.d. að sitja rétt, halda rétt á trommukjuðum o.s.frv. Síðan er farið í gegnum hina ýmsu trommutakta í flestum stílum t.d. rokki, poppi, blús og fönki. Nemendur læra um takta og læra að lesa trommunótur sem og form á einföldum lögum sem og tækniæfingar.

Trommukennarar skólans eru: Ingólfur Sigurðsson, Þorvaldur Kári Ingveldarson og Ingólfur Magnússon

Skóladagatal
<<
sep - 2010
>>
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30   
Skođa mánuđ
Hvar heyrđir ţú af Tónsölum?
Auglýsing í bćjarblađi.
Auglýsing í Fréttablađinu.
Heyrt vel talađ um skólann.
Gegnum leit á netinu.
Annari auglýsingu.
Senda inn svar
Skóladagatal
2009 - 2010
Tónsalir - Bćjarlind 12 - 201 Kópavogur - Sími 534 3700 - tonsalir(hjá)tonsalir.is