20 ára afmælishátíð Tónsala
Þann 1. maí buðum við kennurum og velunnurum skólans í heimsókn til að fagna því að nú erum við að ljúka tuttugasta skólaárinu.
Systkinin Daníel og Sara Mjöll Serrano komu og léku fyrir gesti og stóðu sig sérlega vel. Þau voru einmitt fulltrúar Tónsala á nýafstaðinni uppskeruhátíð tónlistarskólanna, Nótunni.
Bæjarstjóri Kópavogs, Ásdís Kristjánsdóttir, heiðraði okkur með nærveru sinni og færði okkur blóm, auk þess að spreyta sig á trommunum. Er það mál manna að þar fari efnilegur framtíðartrommuleikari.