Miðvikudaginn 18. Febrúar, var starfsdagur hjá kennurum í Tónsölum. Þá fengum við í heimsókn til okkar tvo fyrirlesara. Jóhanna Birta Bjartmarsdóttir sagði okkur frá sinni vegferð um menntakerfið og fræddi okkur um taugafjölbreytileika, aðgengi og inngildandi umhverfi. Hún stofnaði fyrirtækið Harts (www.harts.is) og má með sanni segja að það var sérlega áhrifaríkt að heyra hennar sögu og veitti okkur kennurum innblástur. Einnig kom til okkar Baldvin Logi Einarsson. Baldvin er sálfræðingur og starfar hjá Litlu kvíðameðferðarstöðinni. Hann fræddi okkur um kvíða í víðum skilningi. Svo sannarlega gagnlegt fyrir tónlistarkennara að fræðast um kvíða nemanda. Frábær starfsdagur hjá okkur í Tónsölum þar sem við góð ráð og ný verkfæri til að vinna með okkar nemendum.